Malarbrautir eru víða utan við þéttbýli og mikilvægt að flugmenn þekki og kunni að hegða sér á slíkum brautum. Auðvelt er að valda verulegum skemmdum á flugvélum ef ranglega er farið að á malarbrautum. Stærsta ógnin er grjót og möl á brautum sem loftskrúfan sogar upp þegar afl er sett á mótorinn. Grjóti kastast því í skrúfuna, vængi, stél og skrokk og veldur verulegum skemmdum.
Read MoreVetrarflug er vinsælt meðal flugmanna þar sem fallegir dagar að vetri fela oftast í sér logn, gott skyggni, engin ský og þykkt og kalt loft sem hefur mjög jákvæð áhrif á afköst flugvéla. Að vetrarlagi er gott að hafa þessa punkta í huga.
Read MoreUndirbúningur fyrir start í frosti felst meðal annars í því að hita mótorinn ef hitari er fyrir hendi. Einnig eru olíur flugvélahreyfla mun þykkari en bílvélaolíur. Þannig verður startið "þungt" í frosti vegna seigju olíunnar.
Read MoreVið akstur flugvéla myndast töluverð orka. Bæði við að gefa hreyfli afl og svo aftur hemlunarorka þegar vélin er stöðvuð aftur með bremsum. En hvernig er best að nýta þessa orku?
Read MoreÁ flugvélum er svonefndur EGT mælir sem þýðir Exhaust gas temperature og mælir hitastig útblásturs úr mótornum. Þegar hvert einasta eldsneytismólikúl og hvert einasta súrefnismólikúl geta tengst saman án þess að skilja nokkurt út undan næst hámarks hitaorka. Þannig fer ekkert eldsneyti eða súrefni til spillis við brunann.
Read MoreGeirfugl fagnar nú 20 ára afmæli sínu en félagið var stofnað formlega árið 1997. Félagið hefur þroskast hratt og er í dag hornsteinn almannaflugs á Íslandi sem stærsti flugklúbburinn. Félagsmenn eru 178 talsins og skipta flugnemar hundruðum sem ýmist hafa lokið námi eða stunda nám hjá félaginu.
Read More