SAMÞYKKTIR
FYRIR
Flugfélagið Geirfugl ehf.
1. gr.
Félagið
er einkahlutafélag og er nafn þess Flugfélagið Geirfugl ehf.
2. gr.
Heimilisfang
félagsins er að Fluggörðum 25 í Reykjavík, 101 Reykjavík.
3. gr.
Tilgangur
félagsins er kaup, sala, útleiga og rekstur loftfara og fasteigna, flugkennsla
og önnur skyld starfsemi sem og lánastarfsemi.
4. gr.
Hlutafé félagsins er kr. 19.250.000
-krónur nítjánmilljónirtvöhundruðogfimmtíuþúsund-. Hlutir eru 175 og er hver
þeirra að fjárhæð kr. 110.000, -krónur eitt hundrað og tíu þúsund- að
nafnverði.
Stjórn félagsins er heimilt að hækka hlutafé félagsins um kr. 2.750.000 -krónur
tværmilljónirsjöhundruðogfimmtíuþúsund - með útgáfu 25 nýrra hluta sem hver er
að nafnverði kr. 110.000 -krónur eitt hundrað og tíuþúsund-. Stjórnin ákveður
sölugengi og sölureglur hlutanna. Hluthafar falla frá forkaupsrétti sínum
vegna þessarar hækkunar.
4. gr. a.
Útgefnir hlutir að baki hverri flugvél
í umráðum félagsins skulu ekki vera fleiri en 25.
Víkja má frá ákvæði 1. mgr. tímabundið ef nauðsynlegt er vegna breytinga á
flugvélaflota..
5. gr.
Heimilt
er að hækka hlutafé félagsins með ályktun hluthafafundar og þarf til sama magn
atkvæða og til breytinga á samþykktum þessum.
Hluthafafundur einn getur ákveðið lækkun hlutafjár.
6. gr.
Stjórn
félagsins skal halda hlutaskrá samkvæmt lögum.
7. gr.
Eigendaskipti
að hlutum í félaginu öðlast ekki gildi gagnvart því fyrr en stjórn þess hefur
verið tilkynnt um það skriflega og þau hafa verið færð hlutaskrá.
Stjórn
félagsins hefur forkaupsrétt fyrir félagsins hönd að fölum hlutum. Verði ágreiningur um verð hluta skal það
ákveðið með mati tveggja óvilhallra manna sem aðilar koma sér saman um.
Forkaupsréttarhafi hefur tveggja mánaða frest til að beita forkaupsrétti sínum
og telst fresturinn frá tilkynningu til stjórnar um tilboð. Þá mega eigi líða
fleiri en þrír mánuðir frá því að kaup voru ákveðin þar til kaupverð er greitt.
Eigendaskipti
vegna erfða eða búskipta lúta ekki framangreindum forkaupsréttarreglum.
Óheimilt
er að veðsetja eða gefa hluti í félaginu án samþykkis félagsstjórnar.
Stjórn
félagsins þarf að samþykkja nýjan hluthafa fyrir hönd félagsins.
8. gr.
Félagið
má eigi veita lán út á hluti sína. Félaginu er heimilt að kaupa eigin hluti að
því marki sem lög leyfa. Óheimilt er að neyta atkvæðisréttar fyrir þá hluti sem
félagið á sjálft.
9. gr.
Hluthafi
ber ekki ábyrgð á skuldbindingum félagsins fram yfir hlut sinn í félaginu.
10. gr.
Æðsta
vald í málefnum félagsins er í höndum lögmætra hluthafafunda sbr. lög um
einkahlutafélög (ehfl.).
11. gr.
Aðalfundur
skal haldinn fyrir lok apríl ár hvert.
Aukahluthafafundi
skal halda eftir ákvörðun stjórnar eða að kröfu hluthafa sem ráða a.m.k. einum
tíunda hluta hlutafjár í félaginu. Skal krafan skriflega gerð og fundarefni
tilgreint og fundur boðaður þá innan fjórtándaga. Ef stjórnin skirrist við að
boða fund eftir móttöku slíkrar kröfu má leita atbeina ráðherra samkvæmt 62.
gr. ehfl.
Heimilt er að halda hluthafafundi annars staðar en á heimili félagsins.
12. gr.
Félagsstjórn
skal boða til hluthafafunda með tilkynningu til hvers hluthafa og með
auglýsingu í dagblaði. Aðalfundir skulu
boðaðir með sama hætti og aðrir hluthafafundir.
Fundir skulu boðaðir með minnst sjö daga fyrirvara. Fundarefnis skal
getið í fundarboði.
Hluthafafundur
er lögmætur ef hann er löglega boðaður.
13. gr.
Eitt
atkvæði fylgir hverjum 110.000 krónum í hlutafé. Hluthafar geta með skriflegu
umboði veitt umboðsmönnum heimild til að sækja hluthafafund og fara með
atkvæðisrétt sinn.
Á
hluthafafundi ræður afl atkvæða nema öðruvísi sé fyrir mælt í. Samþykki
allra hluthafa þarf til þess:
a. að
skylda hluthafa til að leggja fram fé í félagsþarfir fram yfir skuldbindingar
sínar,
b. að
takmarka heimild manna til meðferðar á hlutum sínum,
c. að
breyta tilgangi félagsins að verulegu leyti eða
d. að
breyta ákvæðum samþykktanna um hlutdeild manna í félaginu eða jafnrétti þeirra
á milli.
e. að
láta hluthafa þola innlausn á hlut sínum.
Tillögur um breytingar á samþykktum
félagsins eða um sameiningu þess við önnur félög eða fyrirtæki má ekki taka til
meðferðar á fundum þess nema þess hafi verið getið í fundarboði.
14. gr.
Á aðalfundi skulu tekin fyrir þessi
mál:
1. Stjórn
félagsins skal skýra frá hag félagsins og rekstri þess á liðnu starfsári.
2. Efnahagsreikningur
og rekstrarreikningur félagsins fyrir liðið starfsár skulu lagðir fram ásamt
athugasemdum endurskoðenda eða skoðunarmanna félagsins til samþykktar.
3. Stjórn
félagsins skal kjörin og endurskoðendur eða skoðunarmenn.
4. Umræður
og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.
5.
Ákvörðun um kjör stjórnar og embættismanna félagsins.
Framboðsfrestur til stjórnar rennur út
kl. 16:00 3 dögum fyrir boðaðan hluthafafund.
Framboðum til stjórnar skal skila skriflega á skrifstofu félagsins.
15. gr.
Fundargerðarbók skal haldin og í hana
skráð það sem gerist á hluthafafundum.
16. gr.
Stjórn félagsins skal skipuð fimm
mönnum, kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Stjórn félagsins stýrir öllum
málefnum félagsins milli hluthafafunda og gætir hagsmuna þess gagnvart þriðja
manni. Undirskriftir þriggja stjórnarmanna skuldbinda félagið.
Stjórnarfundir eru lögmætir ef
meirihluti stjórnarmanna sækir fund. Afl atkvæða ræður afgreiðslu mála. Halda skal fundargerð um stjórnarfund.
Framkvæmdastjóri félagsins á rétt til
setu á stjórnarfundum með málfrelsi og tillögurétt.
17. gr.
Stjórnin skiptir sjálf með sér
verkum. Formaður boðar til stjórnarfunda. Hver stjórnarmaður getur krafist
stjórnarfundar. Sama rétt á framkvæmdastjóri flugvélar ef hann er ekki í stjórn
félagsins.
Stjórnin skal setja sér starfsreglur
þar sem nánar skal kveðið á um framkvæmd starfa hennar.
Kjör stjórnarmanna og annarra
embættismanna félagsins skulu ákveðin á aðalfundi.
18. gr.
Stjórn félagsins ræður framkvæmdastjóra
og ákveður starfskjör hans. Hún veitir og prókúruumboð fyrir félagið.
Framkvæmdastjóri hefur með höndum
stjórn á daglegum rekstri félagsins og kemur fram fyrir þess hönd í öllum málum
sem varða venjulegan rekstur. Framkvæmdastjóra ber að veita stjórnarmönnum og
endurskoðendum eða skoðunarmönnum allar upplýsingar um rekstur félagsins sem
þeir kunna að óska og veita ber samkvæmt lögum.
19. gr.
Á aðalfundi félagsins skal kjósa einn
eða fleiri löggilta endurskoðendur eða skoðunarmenn ásamt varamönnum. Skulu
þeir rannsaka reikninga félagsins fyrir hvert starfsár og leggja niðurstöður
sínar fyrir aðalfund. Endurskoðendur eða skoðunarmenn má ekki kjósa úr hópi
stjórnarmanna.
20. gr.
Starfsár og reikningsár er
almanaksárið. Stjórnin skal hafa lokið gerð ársreikninga og lagt fyrir
endurskoðendur eða skoðunarmenn eigi síðar en viku fyrir aðalfund.
21. gr.
Engin sérréttindi fylgja hlutum í
félaginu. Hluthafi þarf að sæta innlausn hluta sinna brjóti hann gróflega gegn
afnotareglum félagsins á flugvélum þess eða standi ekki í skil við félagið. Til
að skylda hluthafa til að sæta innlausn hluta þarf samþykki allra annarra
hluthafa á löglega boðuðum hluthafafundi.
22. gr.
Samþykktum þessum má breyta á lögmætum
aðalfundi eða aukafundi með 2/3 hlutum greiddra atkvæða, svo og með samþykki
hluthafa sem ráða yfir a.m.k. 2/3 hlutum af því hlutafé í félaginu sem farið er
með atkvæði fyrir á fundinum, enda sé annað atkvæðamagn ekki áskilið í
samþykktum eða landslögum, sbr. 68. gr. ehfl.
23. gr.
Með tillögur um slit og skipti á
félaginu skal fara sem um breytingar á samþykktum þessum. Þarf atkvæði hluthafa
sem ráða minnst 2/3 hlutum af heildarhlutafé félagsins til að ákvörðun um slit
sé gild. Hluthafafundur, sem tekið hefur löglega ákvörðun um slit eða skipti
félagsins, skal einnig ákveða ráðstöfun eigna og greiðslu skulda.
24. gr.
Sé þess nokkur kostur skulu flugvélar
flugklúbbsins vera í Múlakoti um Verzlunarmannahelgi og á árlegri flughátíð
félagsins á Helluflugvelli. Einnig skal
reynt að fljúga vélum klúbbsins á sem flestar flugsamkomur.
25. gr.
Þar sem ákvæði samþykkta þessara segja
ekki til um hvernig með skuli farið skal hlíta ákvæðum laga um
einkahlutafélög, svo og öðrum lagaákvæðum er við geta átt.
Þannig
samþykkt í Reykjavík 3. júní 2009